Efnisflokkar

Íslenskt

Fimmtudagur 8. september 2011Engar athugasemdir

Nýtt lag frá Snorra Helga

Snorri Helgason hefur sent frá sér nýtt lag í spilun og er það að finna á nýútkominni breiðskífu hans, Winter Sun. En platan er einmitt plata vikunnar á rás 2 um þessar mundir. Lagið er hressilegur söngur um „Julie“ en hún er með græn augu og kirsuberjarauðar varir. Snorri situr ekki auðum höndum þó svo [...]

Continue reading

Miðvikudagur 7. september 2011Engar athugasemdir

Samaris – Hljóma þú

Frumburður hljómsveitarinnar Samaris leit dagsins ljós fyrir um mánuði síðan í formi laglegrar EP plötu. Heitir gripurinn Hljóma þú og inniheldur platan þrjú lög auk remix-a eftir Futuregrapher, Muted og DJ Arfi. Fóru upptökur fram í Tónlistarskóla Kópavogs en um masteringu sá Sundlaugarvörðurinn Birgir Jón Birgisson. Hljóma þú fæst að sjálfsögðu hjá gogogyoko

Continue reading

Miðvikudagur 7. september 2011Engar athugasemdir

Hermigervill

Tónlistarmaðurinn Hermigervill mun gefa út geisladiskinn Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög mánudaginn 12. september. Þar er að finna 10 íslenskar dægurlagaperlur í nýjum búningi, þar á meðal hið sívinsæla „Gvendur á eyrinni“, hið hugljúfa „Ég veit þú kemur“ og hið hressilega „Partýbær“. Platan hefur nú þegar verið gerð fáanleg á tónlistarvefnum www.tonlist.is í sérstakri forútgáfu, [...]

Continue reading

Þriðjudagur 6. september 2011Engar athugasemdir

1860

Hljómsveitin 1860 gefur í dag út sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið Sagan. Útgefandi á Íslandi er Konunglega siglingasambandið en unnið er að útgáfu í Bandaríkjunum á vegum Gravitation Records. Titill plötunnar er bæði skírskotun í sagnahefðina innan þjóðlagatónlistar og einnig til heiðurs vísindamanninum Carl Sagan en hljómsveitarmeðlimir sækja mikinn innblástur í verk hans. Platan [...]

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Continue reading

Mánudagur 5. september 2011Engar athugasemdir

Nýtt myndband frá Apparat Organ Quartet

Hér að ofan er nýjasta myndband félaganna í Apparat Organ Quartet af plötunni Pólýfónía og er það við lagið „123 Forever“. Höfundur myndbandsins er Gerda Klotz.

Continue reading

Mánudagur 5. september 2011Engar athugasemdir

Morgan Kane

Hljómsveitin Morgan Kane var að klára að taka upp síðasta lagið af væntanlegri plötu og heitir það „A lonely impulse of delight“. Enn hefur ekkert spurst út um væntanlegan titil eða útgáfudag plötunnar en ætla mætti að sveitin stefni á að ná eins og einni öldu í Jólaflóðinu. Morgan Kane – A lonely impulse of [...]

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Continue reading

Laugardagur 3. september 2011Engar athugasemdir

Sóley

Tónlistarmaðurinn Sóley Stefánsdóttir hefur sent frá sér breiðskífuna We Sink. Platan kom út í gær, út föstudaginn 2. september, samtímis um allan heim hjá þýska útgáfufélaginu Morr Music en Kimi Records annast útgáfu hér á landi. We Sink er fyrsta breiðskífa Sóleyjar en fyrir rúmu ári síðan kom út stuttskífan Theater Island. Sóleyju þekkja margir [...]

Continue reading

Miðvikudagur 31. ágúst 2011Engar athugasemdir

Heyrið nýju HAM plötuna á gogoyoko

Jú, það er rétt! Eftir tuttugu og tveggja ára bið hefur hin goðsagnakennda sveit HAM gefið út nýja plötu sem nefnist Svik, harmur og dauði. Aðdáendur sveitarinnar geta nú hlustað á og fjárfest í gripnum á vef tónlistarveitunnar frábæru gogoyoko. Ég held það sé ekki spurning um annað en að skella sér á eintak og [...]

Continue reading

Miðvikudagur 31. ágúst 2011Engar athugasemdir

Fjórða útgáfa Möller Records lítur dagsins ljós

Möller Records hafa gefið út frumraun tónlistarmannsins Fu Kaisha (Dagbjartur Elís Ingvarsson) sem nefnist Porth / Mangaster. Hafa margir beðið með mikilli eftirvæntingu eftir þessari skífu, enda Dagbjartur talinn vera einn efnilegasti raftónlistarmaður Íslands. Skífan inniheldur tvö lög eftir Fu Kaisha, „Porth“ og „Mangaster“, ásamt endurhljóðblöndun frá tónlistarmönnunum Condition Indicator (sem er óþekktur strákur frá [...]

Continue reading

Miðvikudagur 31. ágúst 2011Engar athugasemdir

RÓ – The Battle of Brothers

Út er komin platan The Battle of Brothers með tvíekinu RÓ en það skipa þeir Ómar Emilson og Ragnar Sólberg Rafnsson. Þann síðarnefnda þekkja eflaust margir sem forsprakka rokksveitarinnar Sign. The Battle of Brothers er þó langt frá því að vera hreint og beint rokk og hljómar helst eins og einhverskonar bræðingur af því sem [...]

Continue reading

Þriðjudagur 30. ágúst 2011Engar athugasemdir

ADHD

Hljómsveitin ADHD heldur útgáfuteiti á Kex Hostel, Skúlagötu 28, miðvikudagskvöldið næstkomandi klukkan 18:00. Tilefnið er augljóst, til þess að fagna nýútkominni annari plötu sveitarinnar og ber sú plata nafnið ADHD2. ADHD fór í hljóðver nú í vor, gagngert til þess að taka upp efni fyrir þessa nýútkomnu plötu. Á þessari plötu kannar hljómsveitin nýja möguleika [...]

Continue reading

Þriðjudagur 30. ágúst 2011Engar athugasemdir

The Assassin of a Beautiful Brunette – Lights Will Lead the Way

Hljómsveitin The Assassin of a Beautiful Brunette var að gefa út nýtt myndband við lag sem heitir „Lights Will Lead the Way“. Lagið er tekið upp í Sundlauginni í Mosfellsbæ og mixað og masterað af Baldvini A Aalen. Myndbandið er svo tekið upp á Selfossi, heimabæ sveitarinnar, en það var Fannar Freyr Magnússon sem leikstýrði [...]

Continue reading

Þriðjudagur 30. ágúst 2011Engar athugasemdir

Ikea Satan – White Cat Blues

Ikea Satan hefur gefið út sína aðra smáskífu á stafrænu formi og ber hún nafnið White Cat Blues. Smáskífan samanstendur af þremur lögum sem tekin voru upp og hljóðblönduð af hljómsveitinni sjálfri á góðri viku í æfingarhúsnæði þeirra. Að lokum var hún hljómjöfnuð heima hjá tónlistarmanninum Arnari Helga Aðalsteinssyni, sem er betur þekktur sem HaZaR [...]

Continue reading

Mánudagur 29. ágúst 2011Ein athugasemd

Trust The Lies

Íslenska post-hardcore sveitin Trust The Lies hefur sent frá sér nýtt lag sem heitir „Remember These Moments“. Það var ekki minni maður en sjálfur Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson sem sá um upptökur en lagið verður að finna á væntanlegri sjálftitlaðri plötu sveitarinnar sem væntanleg er í lok árs. Trust The Lies – Remember These Moments

Continue reading

Mánudagur 29. ágúst 2011Engar athugasemdir

Kiriyama Family þekja Daft Punk cover

Hljómsveitin Kiriyama Family hefur setið sveitt við upptökur á sinni fyrstu breiðskífu undarfarnar vikur, en drengirnir ákváðu þó að taka stutta pásu og henda í eitt tökulag. Lagið heitir „Something About Us“ og er af plötunni Discovery með franska dúettnum Daft Punk. Myndbandið fangar sveitina í æfingaplássi sínu með hjálp heimatilbúins snúningsapparats sem var sérstaklega [...]

Continue reading

Sunnudagur 28. ágúst 2011Engar athugasemdir

Print

Á föstudaginn kom á netið lagið  „Stóriðjuverkefnið Mig“ – eftir Línus Orra og Þóri Bogason (úr Just Another Snake Cult) – sem er lokalag heimildarmyndarinnar Ge9n, eftir Hauk Má Helgason. Ge9n fjallar um nímenningana sem sakaðir voru um árás á Alþingi í Búsáhaldabyltingunni. Textinn er tekinn upp úr ljóðabók Jóns Arnar Loðmfjörð Gengismunur, en sú [...]

Continue reading

Sunnudagur 28. ágúst 2011Engar athugasemdir

hermigerv

Hermigervill fylgir nú eftir hinni geysivinsælu plötu Hermigervill leikur vinsæl íslenzk lög með hinni splúnkunýju Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög. Platan mun koma út í byrjun september og inniheldur tíu perlur sem eru öllum landsmönnum vel kunn, þar á meðal hið sívinsæla „Gvendur á eyrinni“, hið hugljúfa „Ég veit þú kemur“ og hið lauflétta „Nú liggur [...]

Continue reading

Fimmtudagur 25. ágúst 2011Engar athugasemdir

Airwaves_Akureyri_2011

Fréttatilkynning frá Iceland Airwaves: Iceland Airwaves heldur norður til Akureyrar og stendur fyrir tónleikum á Græna Hattinum laugardaginn 27. ágúst nk. Fram koma: Of Monsters and Men, Contalgen Funeral og Ljósvaki. Húsið opnar kl. 21:00 og tónleikarnir hefjast skömmu síðar. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir. Hin annálaða 101 Reykjavík hátíð, Iceland Airwaves, hristir [...]

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Continue reading

Þriðjudagur 23. ágúst 2011Engar athugasemdir

Logi Pedro

Logi Pedro Stefánsson, sem flestir ættu að kannast við sem liðsmann Retro Stefson, er maðurinn á bakvið listamannsnafnið Pedropilatus. Meðfylgjandi er nýtt lag frá honum sem nefnist „Frustration (Salve Mundi)“ en þar er honum til halds og trausts söngvarinn Hugi Þeyr. Að sögn Loga hefur lagið verið í tæp tvö ár í vinnslu en það [...]

Continue reading

Mánudagur 22. ágúst 2011Engar athugasemdir

Í nóvember er væntanleg frá Sigur Rós heimildamynd og tvöföld hljómleikaplata þar sem fjallað er um síðustu tónleika hljómsveitarinnar áður en hún fór í ótímabundið frí árið 2008. Myndin og platan voru tekin upp á lokatónleikum heimsreisu Sigur Rósar í Alexandra Palace í London og er þetta í fyrsta skipti þar sem sveitin sést á [...]

Continue reading

Laugardagur 20. ágúst 2011Engar athugasemdir

Contalgen Funeral

Lagið „Pretty Red Dress“ er eftir Andra Má Sigurðsson og var tekið upp live í fyrrakvöld í Stúdíó Benmen en það er stúdíó sem Fúsi nokkur Ben starfrækir á Sauðárkróki. Contalgen Funeral mun spila á Melodica Festival næstu helgi og var á Gærunni á Sauðárkróki síðustu helgi. Sveitin hefur enn ekki gefið út plötu en [...]

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Continue reading