Efnisflokkar

Nýtt lag frá Snorra Helga

Fimmtudagur 8. september 2011Engar athugasemdir

Snorri Helgason hefur sent frá sér nýtt lag í spilun og er það að finna á nýútkominni breiðskífu hans, Winter Sun. En platan er einmitt plata vikunnar á rás 2 um þessar mundir. Lagið er hressilegur söngur um „Julie“ en hún er með græn augu og kirsuberjarauðar varir.

Snorri situr ekki auðum höndum þó svo að hann dvelji að öllu jöfnu í Lundúnaborg og hefur nýverið leikið á tónleikum í Helsinki og Tallinn. Á döfinni eru svo tónleikar á The Troubadour í London en þar hafa margir snillingar leikið listir sínar, eins og til dæmis Bob Dylan, Jimi Hendrix og Led Zeppelin. Í byrjun október mun Snorri koma fram á tónleikum á Íslandi og svo að sjálfsögðu koma fram á Airwaves tónlistarhátíðinni.

Tengdar færslur:

  1. Nýtt lag frá Snorra Helga
  2. Nýtt myndband frá Snorra Helga
  3. Nýtt lag og ný heimasíða hjá Snorra Helgasyni
  4. Afmælisgjöf frá Snorra Helgasyni
  5. Kimi Records kvöld á Airwaves hátíðinni haldið í þriðja sinn

Leave a Reply

Connect with Facebook